Viðskiptavinir

Skoða sem PDF skjal
Prenta út
Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Sverrir Geirdal
Þriðjudagur, 28. Apríl 2009 20:55

Ný-Fiskur (www.nyfiskur.is)

Albert Sveinsson er stjórnarformaður síðan 2001.  Albert hefur umsjón með efnahagsreikningi félagsins ásamt að koma að öllum meiriháttar ákvörðunum í rekstri félagsins.  Hjá Ný-Fiski höfum við það þannig að Albert er á skrifstofum félagsins einn dag í viku.  Þar fyrir utan sinnir hann tilfallandi verkefnum og úrlausnarefnum.

Meðal fyrri verkefna fyrir félagið er:

 

  • Stefnumótun
  • Kvótakaup
  • Samningar við banka
  • Innsetning áætlanakerfis
  • Samningagerð við erlenda viðskiptavini
  • Endurskipulagning vinnslusalar og samningar við innlenda byrgja v. vélakaupa 
 
Stjörnu-Oddi (www.star-oddi.com)
 
Sverrir Geirdal er stjórnarformaður félagsins og hefur verið það frá hausti 2008.  Þar áður var hann stjórnarformaður félagsins árin 1998 og 1999.  Sverrir situr í stjórninni á vegum Nýsköpunarsjóðs með stuðningu frumkvöðuls félagsins.  Verkefni Sverris frá hausti 2008 hafa verið að ná utan um kjarnagetu félagsins og setja fram nýja stefnu fyrir félagið.  Markmiðið er að vaxa og skjóta frekari stoðum undir reksturinn með sókn á nýja markaði.
 
Meðal verkefna fyrir félagið eru:
 
  • Stefnumótun
  • Samskipti við eigendur
  • Gerð viðskiptalíkana vegna einstakra viðskiptahugmynda
  • Hönnun á uppsetningu stjórnendaupplýsinga
  • Endurskipulag ábyrgðaskiptingar meðal lykilstjórnenda
 
Íslandsbanki (www.islandsbanki.is)
 
Vegna uppruna síns hefur Sverrir Geirdal þjónað Íslandsbanka frá 2001.  Sverrir átti þátt í að þróa skuldabréfakerfið Fáfni á sínum tíma.  Kerfið er í fullri notkun hjá Íslandsbanka og heldur þar utan um megin þorra lána bankans.  frá 1987 hefur Sverrir sinnt utanumhaldi lána og oftast með hjálp Fáfnis.
 
Verkefni fyrir bankann:
 
Forritun
Greining og hönnun
skipulag snertiflatarins á milli notenda og kerfis.
Uppsetning verkferla
Hönnun nýrra lausna
Teygjulánin (greiðslujöfnun erlendra húsnæðislána)
og Margt fleira.
 
Blikksmiðurinn (www.blikk.is)
 
Albert Sveinsson er stjórnarformaður félagsins síðan 2005.  Við komum að félaginu til að hjálpa til við erfið eigendaskipti.  Í kj0lfarið tók Albert sæti í stjórn félagsins og hefur þar eins daga starfsskyldu í viku.  Verkefnin eru margskonar og fjölbreytt.  Þó ekki hafi formaðurinn enn verið beðin um að mæta í samfestingi.
 
Meðal verkefnanna eru:
 
  • Stefnumótun
  • Áætlanagerð
  • Breyta áherslum við val á verkefnum
  • Kaup á fyrirtækjum
  • Verðmat fyrirtækja og samningar
  • Samningar við fjármálastofnanir
 
 

 

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 28. Apríl 2009 21:19 )